Hula Handverk

Prjónauppskriftir, Verkafnabók prjónarans, prjónamerkimiðar

  • Allar vörur
    • Sætindi
    • Gjafamiðar
    • Límmiðar
    • Verkefnabók/Gjafamiðar
    • Bók
  • Allar uppskriftir
    • Uppskriftir fyrir börn
    • Fullorðnir
    • Lambhúshettur-Hoodies
  • Hafðu samband
  • Heima
  • Karfa
    • Klára innkaup
  •  
  • Allar vörur
    • Sætindi
    • Gjafamiðar
    • Límmiðar
    • Verkefnabók/Gjafamiðar
    • Bók
  • Allar uppskriftir
    • Uppskriftir fyrir börn
    • Fullorðnir
    • Lambhúshettur-Hoodies
  • Hafðu samband
  • Heima
  • Karfa
    • Klára innkaup
  •  

Flokkar

  • Allar vörur
    • Sætindi
    • Gjafamiðar
    • Límmiðar
    • Verkefnabók/Gjafamiðar
    • Bók
  • Allar uppskriftir
    • Uppskriftir fyrir börn
    • Fullorðnir
    • Lambhúshettur-Hoodies
  • Hafðu samband
  • Heima
  • Karfa
    • Klára innkaup
  •  

Allar vörur

Sýna 1–9 af 21 niðurstaðaSorted by latest

  • Sóley sumartoppur

    Sóley sumartoppur

    1,100kr.
    Setja í körfu
  • Ljósalyng, uppskrift af barnapeysu

    Ljósalyng, uppskrift af barnapeysu

    1,100kr.
    Setja í körfu
  • Súkkulaðibitar með hnetum og döðlum

    Súkkulaðibitar með hnetum og döðlum

    0kr.
    Setja í körfu
  • Baldursbrá

    Baldursbrá

    1,100kr.
    Setja í körfu
  • Lerki, stór - Uppskrift

    Lerki, stór – Uppskrift

    1,100kr.
    Setja í körfu
  • Frí uppskrift

    Grænt sjal – Frí uppskrift

    0kr.
    Setja í körfu
  • Lerki krakkapeysa, uppskrift

    Lerki krakkapeysa, uppskrift

    1,100kr.
    Setja í körfu
  • Blágresi, sjal

    Blágresi, sjal

    850kr.
    Setja í körfu
  • Blágresi, 2 klútar

    Blágresi, 2 klútar

    850kr.
    Setja í körfu
123
  • Hula ehf.
    Lambhagi 10, 225 Álftanes
    Sími. 847-2814
    Kt. 451120-0420

hula.is_

I'm Ásthildur, I love knitting, design knitting patterns, interior, flowers, baking and cooking.
@hula.is I sell my knitting pattern.

Kynning ☘️ Prjóna IG mitt var stofnað sumarið 2020 Kynning ☘️
Prjóna IG mitt var stofnað sumarið 2020 sem nokkurskonar dagbók til þess að halda utan um prjónið mitt og einnig til þess að leyfa öðrum að njóta. Margt hefur breyst síðan þá en handavinnan er alltaf í forgrunni. 
Ég elska að heyra frá ykkur, fá allskonar spurningar og viðbrögð við því sem ég er að gera. Mér þætti frábært að vita hvað þér finnst mest áhugavert og skemmtilegt við IG mitt.
Litrík, mjúk og hlý peysa fyrir elsku Sól. Peysan Litrík, mjúk og hlý peysa fyrir elsku Sól.
Peysan er prjónuð úr allskonar afgöngum á 
4 mm prjóna. 
Ég notaði uppskriftina af Lerki-barnapeysu, (fæst á hula.is) sem er góð grunn uppskrift í mörgum stærðum, sleppti bara mynstrinu.
Mjög skemmtilegt að raða saman litunum og sjá útkomuna fæðast 🧡
Tengdasonurinn ❤️ Uppskriftin heitir Tinde og er ú Tengdasonurinn ❤️
Uppskriftin heitir Tinde og er úr Tinnu prjónablaði nr. 24
Peysan er úr léttlopa og fylgiþræði. 
Titicaca (litur Havana) er með í dökkbrúnalitnum en í munsturlitunum var ég með einband sem fylgiþráð. Inn í hálsmálið prjónaði ég með mjúku Baby yarn frá Isager sem ég átti. 
Brúni aðal lopaliturinn er nr. 867 
Ég fer stundum óhefðbundnar leiðir, á síðustu myndinni sést að efsti munsturliturinn er ljósgrár, ég var ekki sátt við hann þegar peysan var tilbúin og gat ekki farið að rekja allt upp. Ég fékk mér því dökkbrúnan túss sem þolir þvott og fór með honum yfir munstrið, lykkju fyrir lykkju. Örugglega ekki mælt með af sérfræðingum en mér fannst þetta fín redding.
What a beauty 🩵 Ný peysa Uppskriftin heitir Ease T What a beauty 🩵
Ný peysa
Uppskriftin heitir Ease Tee og er eftir 
Ann Ventzel. 
Mér finnst mjög gaman að læra eitthvað nýtt í prjóni, ég hafði ekki prófað þessa útaukningu og ekki svona útfærslu á ermum. 
Ég notaði einn þráð af Mandarin Petit
(litur 5930) og einn þráð af Tynn Silk Mohair (litur 6012) á 3,5mm prjóna. 
Skemmtileg uppskrift sem ég mæli með.
#esatee 
#summersweater 
#knittersofinstagram 
#breienvoormijzelf
Peysan hennar Guðrúnar Fjólu. Prjónuð úr mjúku bó Peysan hennar Guðrúnar Fjólu. 
Prjónuð úr mjúku bómullargarni á pr.nr. 4,0
Fallega gollan Björk er mikið notuð, elskana. Upps Fallega gollan Björk er mikið notuð, elskana.
Uppskriftin er eftir Lindu vinkonu mína. 
Ég gerði ljósu peysuna aðeins grófari en hún átti að vera en þessa bláu úr 
uppgefnu garni, sem fæst í 
@garnigangi 
@knits.by.linda 
#knitting
#breien 
#knittersofinstagram 
#björkgolla 

 
Hvernig finnst þér ?
knitted this one for my lovely Ella ❤️ The patter knitted this one for my lovely Ella ❤️

The pattern is called Alpar Létt by Heli Nikula, from the book Ullaræði 2. I think it’s one of the most beautiful Icelandic wool sweaters I’ve ever made.

I used all sorts of yarn from my stash for the patterned yoke. One of the blue shades is hand-dyed wool from the Vatnsnes Advent calendar, held together with mohair. I also used Smart, Lille Lerke, silk, and a few other yarns.

The main yarn is white Plötulopi held together with a strand of Coast, which I’ve been knitting with a lot lately. Coast is available at Garn í Gangi in Akureyri.

I love putting colours like these together and mixing all kinds of yarn.

Prjónaði þessa fyrir elsku Ellu tengdadóttur mína ❤️

Uppskriftin heitir Alpar létt og er eftir 
Heli Nikula, úr bókinni Ullaræði 2, mér finnst þetta ein fallegasta lopapeysan.
Ég notaði allskonar heimagarn í munsturbekkinn.
Einn af bláu litunum er handlitað ullarband úr
jóladagatalinu frá Vatnsnes prjónað saman með mohair, ég var líka med Smart, Lille Lerke, silki, svo eitthvad sé nefnt. 
Aðalgarnið er hvítur plötulopi með einum þræði af Coast, sem ég hef prjónað mikið úr. Coast fæst í Garn í Gangi Akureyri.
Ég elska að setja saman svona liti og blanda saman allskonar garni. 

@garnigangi 
©vatnsnesyarn

#knittingforwomen 
#icelandicsweater 
#knittingsweater 
#handknitted 
#slowfashion
Lukka í Amsterdam ☀️ Ég fékk að prufuprjóna Lukku Lukka í Amsterdam ☀️

Ég fékk að prufuprjóna Lukku sumarpeysu fyrir elsku Lindu vinkonu mína. Uppskriftin kemur í sölu í vikunni, garnið í peysuna fæst í 
Garn í Gangi á Akureyri

Peysan passaði fullkomlega við hollenska sumarið um helgina — og ég er handviss um að hún verður ekki síðri á Íslandi í sumar. 🤍
@knits.by.linda 
#prjón
#prjónagleðin2026 
#lukkasumarpeysa 
#breien 
#knitting
🌼Uppskriftin af sæta sumartoppnum Sóley er kominn 🌼Uppskriftin af sæta sumartoppnum Sóley er kominn í sölu á hula.is
Á meðan beðið er eftir sumrinu er tilvalið að skella í amk. einn. 
Toppurinn er prjónaður fram og til baka, ofan frá og niður. Það má nota hann með opnunina að framan eða aftan, yfir t.d. hlýrabol, kjól eða skyrtu.
Toppurinn er prjónaður á pr. nr. 4,0
úr tvöföldu Coast eða Vaya, einföldum þræði.
Uppgefið garn fæst hjá @garnigangi.

Í tilefni dagsins setti ég inn afsláttarkóða sem veitir 25% afslátt af þessari uppskrift og einnig fyrir barnatoppinn Baldursbrá 🌼
Kóði: Sumar 26
Ég fékk að prufuprjóna þessa fínu peysu fyrir Lind Ég fékk að prufuprjóna þessa fínu peysu fyrir Lindu vinkonu mína fyrir nokkrum vikum. 
Ég notaði uppgefið garn, Mohair Edition Recy frá Edy Angola
(litur Navy) saman með Titicaca frá Holst (litur Carbon blue) á 5 mm prjóna.
Einföld, stílhrein og sparileg 💙
Uppskriftin fæst hjá @knits.by.linda 
og dásamlega garnið keypti ég í @garnigangi
Ljósalyng Börn elska liti, ég var með þeirra gleð Ljósalyng 
Börn elska liti, ég var með þeirra gleði í huga þegar ég hannaði þessa peysu.
Að gera uppskiftina tók smá tíma, litirnir og mynstrið þurftu að fá að mætast á sínum hraða.
Útkoman er falleg og skemmtileg peysa, sem mjög gaman er að gera.
Hún er prjónuð á prjóna nr. 4.0 og 4.5 með prjónfestu 20/10.
Uppgefið garn heitir Pop Merino, það er mjög mjúkt og notalegt.
Það fæst í mörgum litum hjá Guðrún Ólöf studio.

Ég fékk að nota nokkrar myndir frá prufuprjónurunum sem prjónuðu peysurnar í mismunandi lita samsetningum. 
Takk innikega fyrir hjálpina stelpur 💕

@gudrun_olof_studio 
#colorful 
#knittingforkids 
#colorfulknitting 
#colorfulsweater 
#popmerino
Mamma mín átti afmæli nú á dögunum og datt mér í h Mamma mín átti afmæli nú á dögunum og datt mér í hug að prjóna fyrir hana hlýja og litríka peysu. Hún elskar liti og henni er oft kalt. Hún er minn mesti peppari og stuðningskona í prjónastússinu mínu og bara lífinu öllu. 
Mamma er ein jákvæðasta kona sem ég þekki og tæklar lífið með bros  á vör, eitthvað sem ég er að æfa mig í.
Hugmyndin af peysunni kom í framhaldi af barnapeysunni Ljósalyng. Kannski geri uppskrift af þessari, það er nefnilega mjög skemmtilegt að prjóna hana og svo gaman að setja saman litina.
Garnið er Ombelle frá Fonty og er keypt hjá @gudrun_olof_studio 
➡️ fletta til þess að sjá mömmu 83 ára skvísu í peysunni ❤️
@heidiolafs 
#knittingformama 
#knittingwithlove 
#colorfulsweater 
#warmsweater 
#fontyyarn 
#ombellefonty
Bleika peysan. Ég prjónaði þessa djúsí bleiku peys Bleika peysan.
Ég prjónaði þessa djúsí bleiku peysu fyrir elsku Heiðrúnu, ömmu stelpuna mína þegar ég var á ferðalagi um Ísland í sumar. 
Ég fann enga uppskrift sem hentaði svo ég prófaði mig bara áfram þar til ég var sátt við útkomuna. 
Bouclé garnið heitir Teddy og er keypt í @maroverslun. 
Merino Lang sem er í stroffinu og sætu bleiku tölurnar eru frá @garnigangi Akureyri. 

#knittingforkids 
#aroundiceland 
#icelandtrip 
#knittingismytherapy 
#pinkoctober 
#strikktilbørn 
#merinolang 
#teddyyarn
Ásthildur Sóley varð 10 ára í sumar. Undanfarin ár Ásthildur Sóley varð 10
ára í sumar.
Undanfarin ár hef ég
boðið ömmustelpunum
mínum í bæinn í kringum 
afmælin þeirra. Við eigum saman notalegan dag, kikjum á kaffihús,
veljum afmælisgjöf og
borðum saman. 
Mér finnst þetta ótrúlega
dýrmæt og skemmtileg stund og þær fá
að njóta sín einar með
ömmu. Þessi afmælisdagur var engin undantekning en mig langaði líka að gleðja á annan hátt.
Ásthildur Sóley á dúkku sem
hún hefur varla látið frá
sér síðan hún fæddist.
Það kemur líklega að því að dúkkan fái stað upp á hillu og því datt mér i hug að prjóna þetta dress á Nonna litla. 
Litla mamman varð himin sæl með þessa persónulegu gjöf 💙
Gulur september 💛 Það er í lagi að tala um líðan – Gulur september 💛
Það er í lagi að tala um líðan – opinská umræða brýtur niður fordóma.
Hjálp er til staðar – enginn ætti að ganga í gegnum erfiðleika einn.
Sjálfsvíg er stundum hægt að fyrirbyggja með fræðslu, samtali og stuðningi.
Við öll berum ábyrgð – að spyrja, hlusta og vera til staðar getur bjargað lífi 💛

Þessi fallega gula peysa er prjónuð af fingrum fram, (engin uppskrift) á pr. nr. 4,5
Ég var með 2 þræði af Pearl Mohair frá Majo, litur Banana, 
prjónað með 1 þræði af Merci Filcolana, litur 1110
Mohairgarnið fæst hjá 
Guðrún Ólöf Studio
Merci keypti ég fyrir löngu, í Maro
Mjúk og djúsí peysa sem verður án efa mikið notuð. 
Þessi guli kemur sterkur inn í vetur 🍋
@gudrun_olof_studio 
@maroverslun 
#yellowsweater 
#knittingformyself 
#softandelegant
 #knitting_inspire
 #knitting_inspiration 
 #strikk
 #strikkmeg
 #pearlmohair
 #majo 
 #mercifilcolana
Nóvember peysan-fullorðins, eftir Lindu vinkonu mí Nóvember peysan-fullorðins, eftir Lindu vinkonu mína. 
Mjög skemmtileg uppskrift og gaman að prjóna.
Ég notaði Finull frá Rauma og Alva fylgiþráð frá Filcolana á prjóna nr. 5,0
@knits.by.linda 

#nóvemberpeysan 
#kabelsweater 
#woolsweater 
#knitting 
#knitwear 
#strikking 
#strikkforåvarme 
#strikktilmegselv 
#finullgarn 
#rauma 
#filcolana 
#filcolanaalva
Duna Sweater eftir Thelmu Steimann. Ljósmyndir: Duna Sweater eftir Thelmu Steimann. 

Ljósmyndir: @jg.archivist
@heidurasgeirs 
@thelma.steimann 
#dunasweater 
#organicmerinoaran
#knitting 
#knittersofinstagram 
#knittingisthenewyoga 
#fishermansrib 
#fishermansribsweater
#knittingsweater 
#knittingformydaughter 
#knittersofig 
#strikke 
#strikfluencer 
#breien 
#breieniship 
#breienisfijn 
#prjóna 
#handlitaðgarn 

I knitted this cool sweater for my daughter the other day. 
The pattern is called Duna Sweater and is by Thelma Steimann.
Lítil peysa og drög að uppskrift verður til. Það e Lítil peysa og drög að uppskrift verður til.
Það eru nokkrar vinnustundirnar sem það tekur að prjóna og hanna peysu. Hugmynd, garn-og litaval, prjón, upprakning, pæling, meira prjón, meiri upprakning, fleiri pælingar, meira prjón, frágangur og þvottur. Tada....

A small sweater and a draft pattern are created.
It takes several hours of work to knit and design a sweater. Idea, yarn and color selection, knitting, thinking, more knitting, more thinking, more knitting, finishing and washing and tada..
@gudrun_olof_studio 

#knitting
#design
#sweater
#babysweater
#kidssweater
#colorful
#dopamin
#breien
#breienvoorbabys 
#breienvoorkinderen 
#klurigt
Ég hlakka til að eyða meiri tíma hér á næstunni, á Ég hlakka til að eyða meiri tíma hér á næstunni, á mínum besta stað 🏚️

#sumarfrí 
#summertime 
#summervibes 
#summervacations 
#mountainlifestyle 
#icelandnature 
#cosyliving 
#ijsland 
#mooiwonen 
#ijslandvakantiehuisjes
Húfur og aðrir fylgihlutir eru fullkomin verkefni Húfur og aðrir fylgihlutir eru fullkomin verkefni samhliða öðrum stærri. Ég er mjög oft með lítil verkefni sem er hentugt að hafa í veskinu. Mér finnst húfur vera notaðar nánast allt árið um kring en ég reyni að gera léttari húfur fyrir sumarið.
Hérna eru myndir af nokkrum sem ég hef gert síðustu mánuði. Svo er líka skemmtilegt að poppa upp eitthvað sem liggur kannski ónotað,  með fallegum útsaum. 
Átt þú eitthvað uppáhalds verkefni  til þess að hafa með þér hvert sem þú ferð ?

I always like to keep a small project on the needles — something simple and satisfying between bigger knits.
Hats, mittens, and shawls are perfect for that. Quick to cast on, easy to carry, and always useful.
We wear hats almost year-round here, especially the little ones — so I even knit lighter ones during summer.
What’s your favorite in-between project ?
Follow on Instagram

🛒
  • Instagram Hulu
  • Handverk
  • Nýtt
  • Ný uppskrift

Við pöntun á vöru er áríðandi að netfangið þitt sé rétt skrifað svo staðfestingapóstur og uppskrift geti borist kaupanda. Loka