Sóley sumartoppur
1,100kr.
Sóley sumartoppur er stafræn prjónauppskrift á pdf formi. Uppskriftin er afhent sem niðurhal eftir kaup.
Lýsing
Sóley sætur opinn sumartoppur, uppskrift.
Sóley sumartoppur er stafræn prjónauppskrift á pdf formi. Uppskriftin er afhent sem niðurhal eftir kaup.
Toppurinn er prjónaður fram og til baka, ofan frá og niður. Byrjað er á fjórum axlarstykkjum sem síðan eru tengd saman.
I-cord kantur er við opið og einnig prjónaður eftir á í hálsmáli og handvegum. Útaukningar eru gerðar við hálsmál og handveg.
Toppinn má nota með opnunina að framan eða aftan.
Prjónfesta: 24 x 10
Garn: Coast, 55% ull og 45% bómull. Prjónað með tveimur þráðum saman. Eða Vaya, 74% bómull, 16% ull (Merino extrafine), 10% yak.
Prjónað með einföldum þræði.
Svo má að sjálfsögðu nota garn að eigin vali sem passar prjónfestunni.
Stærðir og mál:
| Stærð | Yfirvídd | Yfirvídd bols | Sídd frá öxl |
| XS/S | 80–85 cm | 90 cm | 38 cm |
| M | 90–95 cm | 100 cm | 41 cm |
| L/XL | 100–110 cm | 115 cm | 45 cm |
| XXL/3XL | 110–120 cm | 125 cm | 52 cm |
Eftir greiðslu er staðfestingapóstur sendur á netfangið sem gefið er upp, ásamt slóð á niðurhal í rafrænu formi,
því er mjög mikilvægt að netfangið sé rétt.
Hægt er að hlaða uppskriftinni niður um leið og pósturinn berst og þá gott að vista hana á góðum stað.
Ef um millifærslu er að ræða getur það takið aðeins lengri tíma að fá staðfestingapóstinn.
Stundum lendir þessi póstur í ruslhólfinu svo endilega athugaðu þar ef hún berst ekki.












