Lambagras lambhúshettu uppskrift

0kr.

Mjúk, hlý og létt lambhúshetta fyrir börn.

Eftir greiðslu er staðfestingapóstur sendur á netfangið sem gefið er upp, ásamt slóð á niðurhal í rafrænu formi, því er mjög mikilvægt að netfangið sé rétt.

Hægt er að hlaða uppskriftinni niður um leið og pósturinn berst og þá gott að vista hana á góðum stað.  Ef um millifærslu er að ræða getur það takið aðeins lengri tíma að fá staðfestingapóstinn. 

Lýsing

Mjúk, hlý og létt lambhúshetta fyrir börn.

Húfan er prjónuð í garðaprjóni, slétt fram og til baka.
Byrjað er á kollinum og svo er fitjað upp á auka lykkjur sitt hvoru megin við sem mynda hliðarnar, sem eru svo saumaðar saman.
Lykkjur eru svo teknar upp við andlitsopið.

Stærðir:
1, 2-4, 5-7 ára.

Garn:
Garn að ykkar vali sem hentar fyrir prjónfestunni.
Ég mæli samt ekki með 100% bómull þar sem að hún gefur ekki eftir.

Það sem þarf:
Hringprjónar nr. 2,5 og 3,5 Nál og skæri til frágangs. Prjónamerki.

Prjónafesta:
26 prjónaðar lykkjur á prjón nr. 3,5 gera 10 sm. breidd. Ég mæli með að gera prjónafestu prufu.