Blágresi, sjal
800kr.
Létt, fínlegt og fallegt sjal.
Eftir greiðslu er staðfestingapóstur sendur á netfangið sem gefið er upp, ásamt slóð á niðurhal í rafrænu formi, því er mjög mikilvægt að netfangið sé rétt.
Hægt er að hlaða uppskriftinni niður um leið og pósturinn berst og þá gott að vista hana á góðum stað. Ef um millifærslu er að ræða getur það takið aðeins lengri tíma að fá staðfestingapóstinn.
Stundum lendir þessi póstur í ruslhólfinu svo endilega athugaðu þar ef hún berst ekki til þín.
Lýsing
Létt, fínlegt og fallegt sumar sjal.
Hugmyndin af sjalinu kom þegar mig vantaði fallega gjöf fyrir tengdmömmu.
Ég átti dásamlega fallegt silki sem ég prjónaði úr og útkoman var mjög fallegt og létt sjal.
Sjalið hefur tekið þó nokkrum breytingum frá upphaflega sjalinu.
Ég þurfti að finna fallegt garn sem hentaði, því silkið sem ég notaði fyrir tengdamömmu var keypt í fríi í útlöndum.
Sjalið er prjónað fram og til baka með frekar einföldu munsturprjóni sem er þannig uppsett að það er fallegt bæði á réttunni og röngunni.
Stærð: 180 sm. á lengd, 32 sm. þar sem það er breiðast, mælt eftir þvott og strekkingu.
Garn: Trio 2 frá Isager 50% hör, 30% bómull 20% lyocell, 200 gr. og
Alva sem inniheldur 100 % alpakka, 100 gr.
1 þráður af hvoru.
Eða Trio 2 frá Isager sem 50% hör, 30% bómull, 20% lyocell. 200 gr. og handlitað garn frá Mal sem inniheldur 55% merino, 45% silki, 75 gr.
1 þráður af hvoru. U.þ.b. 600 mtr.
Það sem þarf: Hringprjónn nr. 3,5. Nál og skæri til frágangs.
Prjónfesta: 26 prjónaðar lykkjur og 36 umferðir gera 10 x 10 sm.
Ég mæli með að gera prjónfestu prufu.
Höfundur uppskriftar er Ásthildur Helga www.hula.is