Blágresi, klútur

Léttur, fínlegur og sætur klútur í tveimur stærðum. Passar fyrir börn og fullorðna.

 

ATH. Uppskriftin gæti hafa farið í ruslhólf í tölvupósti. Allar uppskriftir koma rafrænt.

750kr.

Flokkur:

Lýsing

Léttur, fínlegur og sætur klútur í tveimur stærðum. Passar fyrir börn og fullorðna.

Klúturinn er prjónaður fram og til baka með frekar einföldu munsturprjóni sem er þannig uppsett að það er fallegt bæði á réttunni og röngunni.
Munstrin eru 12 fyrir minni klútinn og 14 fyrir þann stærri, þau standa saman af gataprjóni, sléttum og brugðnum lykkjum.

Garn:

Trio 2 frá Isager, 50% hör, 30% bómull, 20% lyocell, 50, (50) gr. og Alva 100% alpakka, 20, (30) gr. 1 þráður af hvoru.
Eða Trio 2 frá Isager 50% hör, 30% bómull, 20% lyocell, 50, 50) gr. og handlitað garn frá Mal sem inniheldur 55% merino, 45% silki 20,(30) gr. 1 þráður af hvoru.

U.þ.b. 100, (175) mtr.

Stærðir.

Minni klúturinn er 85 sm. á lengd og 12 sm. þar sem hann er breiðastur. Þessa stærð er hægt að vefja einn hring um hálsinn og hann er líka fullkominn fyrir börn.
Stærri klúturinn er 125 sm. á lengd og 14 sm. þar sem hann er breiðastur. Þessa stærð er hægt að vefja tvo hringi um hálsinn. Málin eru eftir þvott og létta strekkingu.

Það sem þarf:

Hringprjónn nr. 3,5.
Málband, nál og skæri til frágangs.

Prjónfesta:

26 prjónaðar lykkjur og 36 umferðir gera 10 x 10 sm.

Höfundur uppskriftar er Ásthildur Helga Sölvadóttir @hula.is